Siglingatæki                              Sala og Þjónusta  


   FORSÍÐA

      VÖRUR

     ÞJÓNUSTA

    FRÉTTIR

      UM MAREIND

   HAFÐU SAMBAND

English

Skip á sjó

 

 

Fréttir

15.10.2011
Hringur SH153 og Helgi SH135 fá Marport Trollnemakerfi

Hringur SH153 og Helgi SH135 hafa fengið Marport Trollnemakerfi með  hleranemum sem sýna fram og hliðarhalla ásamt hita og dýpi á toghlerunum, einnig nýja aflanema sem geta sýnt hita dýpi og halla.  Einnig var sett upp viðeigandi móttakari og tölvubúnaður og skjáir sem sýna  álestur og afstöðu á hinum ýmsu trollnemum og höfuðlínuinnkomumælir. Að sögn skipstjóra Hrings og Helga þá eru þessir nýju nemar að reynast þeim mjög vel og hafa nú þegar sparað olíu og meðferð á veiðafærum.

 

  

       


25.8.2010
NMT-kerfinu endanlega lokað 1 september n.k.

Þann 1. september nk. mun Síminn hætta rekstri NMT-kerfisins sem í áratugi hefur þjónað öryggishlutverki bæði til sjós og lands. Í ljósi þessa hefur Síminn ráðist í umfangsmikla uppbygginu 3G farsímakerfis ásamt því að bæta hefðbundna GSM-kerfið mikið. Þrátt fyrir mikla útbreiðslu nýju kerfanna er ekki tryggt að samband verði á öllum svæðum sem nú njóta NMT-þjónustu en með réttu vali á búnaði má minnka eyður þar sem ekki næst samband.

 

Mareind býður uppá uppsetningu á 3G langdrægum GSM  símum ásamt viðeigandi loftnetum.           

Til að tryggja sjómönnum við strendur landsins góða og örugga farsímaþjónustu eftir lokun NMT-kerfisins hefur Síminn farið í viðamikla uppbyggingu á langdrægu 3G kerfi sem veita á sjómönnum aðgang að tal- og gagnaflutningsþjónustu, svipaða þeirri sem almennir viðskiptavinir í landi njóta. Langdrægu 3G sjósendarnir eru lokaðir öðrum en þeim sem hafa sérstaka SJÓ-Sambands áskrift. Þeir sem kaupa slíka áskrift fá einnig aðgang að öllum almennum 2G og 3G sendum í landi. Í samstarfi við Radíómiðun býður Mareind allan þann búnað sem sjómenn þurfa til að tryggja gott og öruggt samband, m.a. útiloftnet, beina og annan símabúnað


1.6.2010
Helgi SH135 fær nýjan tveggja tíðna sónar

Nú hefur Helgi SH135 fengið nýjan Furuno CH300 tveggja tíðna sónar 60/153KHZ sem getur sýnt báðar tíðnir samtímis á skjánum.

Sónarinn getur sýnt lóðrétta og lárétta mynd eða sneiðmynd, einnig er hægt að nota hann eins og hefðbundinn dýptarmælir.

 


17.8.2009
Klakkur SH510 fær gervihnattasjónvarp

Nú á dögunum var klárað að setja upp SeaTel gervihnattasjónvarps móttakara fyrir Astra og Thor um borð í Klakk SH510. Nú getur áhöfnin fylgst með íslenska sjónvarpinu ásamt fjölda erlendra sjónvarpsrása.

Um leið og þessi búnaður var settur upp var jafnframt settir upp FM stereo sendar til að dreifa músík og útvarpsefni þráðlaust á millidekk, vélarúm og í íbúðir.

 


1.8.2009
AIS tækin leysa sjálfvirku tilkynningarskylduna STK af hólmi

Samgönguráðuneytið hefur sett reglugerð nr. 565/2009 um breytingu á reglugerð nr. 672/2006 um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa. Með gildistöku reglugerðarinnar geta skip tilkynnt staðsetningu sína til vaktstöðvar siglinga með sjálfvirku auðkennikerfi skipa (AIS - Automatic Identification System) með sama hætti og með svokölluðum STK tækjum.

Gert er ráð fyrir að eftir 1. janúar 2011 muni AIS kerfið taka við af STK kerfi í ferilvöktun skipa. Evrópureglur ná til skipa yfir 15 metrum að lengd og notast þau við AIS-A tæki. Skipum undir 15 metrum verður heimilt að nota AIS-B tæki sem eru einfaldari að gerð og ódýrari.

Sjá greinina í heild sinni hjá Siglingastofnun

 


1.12.2008
AIS skip

Hægt er að sjá staðsetningu skipa með AIS búnað um allan heim á internetinu, við hjá Mareind höfum sett á heimasíðuna okkar AIS kort til að skoða staðsetningu AIS skipa við Ísland, einnig höfum við sett upp AIS monitor stöð sem staðsett er í Grundarfirði og hlustar eftir AIS skipum við Breiðafjörð.

Skoða AIS skip við Ísland

 


 

27.9.2008
Hringur SH153 fær nýjan Furuno FR2117 radar

Nú í vikunni var settur upp nýr radar um borð í Hring SH153 sem hrein viðbót við gamla Furuno FR-2110 radarinn sem hefur þjónað vel í 10 ár og er enn í fullu fjöri.  Nýji radarinn sem er af gerðinni Furuno FR-2117 er með 6,5´ / 12kw x-band skanner var settur upp í toggálga til að fá sem besta mynd aftur úr skipinu og til að fá sem minnstan skugga framm úr skipinu einnig.

Við óskum skipstjórnarmönnum á Hring SH153 til hamingju með nýja radarinn.

 


 

5.5.2008
Farsæll SH30 fær gervihnattasjónvarp

Nú á dögunum var klárað að setja upp SeaTel gervihnattasjónvarps móttakara fyrir Astra og Thor um borð í Farsæl SH30. Nú getur áhöfnin fylgst með íslenska sjónvarpinu ásamt fjölda erlendra sjónvarpsrása.

Um leið og þessi búnaður var settur upp var jafnframt endurnýjaður búnaður til sjónvarps-áhorfunar í borðsal, setustofum og klefum.


 

6.11.2007
Sigurborg SH12 fær gervihnattasjónvarp

Nú á dögunum fékk Sigurborg SH12,  SeaTel gervihnattasjónvarps móttakara fyrir Astra og Thor.  Nú getur áhöfnin fylgst með íslenska sjónvarpinu ásamt fjölda erlendra sjónvarpsrása.  Nú eru öll 3 skip Soffaníasar Cecilssonar ehf.  komin með Gervihnattasjónvarp.

Um leið og þessi búnaður var settur upp var jafnframt endurnýjaður búnaður til sjónvarpsáhorfunar í borðsal.


 

15.9.2007
Sóley , Grundfirðingur  og Gullhólmi  fá gervihnattasjónvarp

Nú á dögunum fengu ofangreind skip SeaTel gervihnattasjónvarps móttakara fyrir Astra og Thor.  Nú geta áhafnir þessara skipa fylgst með íslenska sjónvarpinu ásamt fjölda erlendra sjónvarpsrása.

Um leið og þessi búnaður var settur upp var jafnframt endurnýjaður búnaður til sjónvarps-áhorfunar í borðsal, setustofum og klefum skipana.

 

 


 

5.6.2007
Helgi SH135  fær Gervihnattasjónvarp  

Mareind ehf, setti  upp Gervihnattasjónvarps-móttökudisk um borð í Helga SH135 um sjómannadags-helgina af gerðinni SeaTel frá R. Sigmundssyni ehf.    Í leiðinni var endurbætt aðstaða og búnaður til sjónvarpsáhorfunar í borðsal skipsins.

Nú eru bæði skip Guðmundar Runólfssonar hf.  komin með gervihnattarsjónvarp en fyrir var Hringur SH153 kominn með slíkan búnað.  Þetta verður að teljast bylting fyrir sjómenn að geta nú horft á bæði íslenskt dagskrárefni frá RÚV og erlent efni í beinni útsendingu.


 

30.12.2006
Útgerðarfélagið Breiðavík ehf. sem feðgarnir Bárður Guðmundsson og Þorsteinn Bárðarson standa að fengu nú á milli hátíða afhentan nýjann bát af gerðinni Cleopatra 38 sem er yfirbyggður og útbúinn til línuveiða.  Báturinn er útbúinn með 2 hliðarskrúfum bæði að framan og aftan sem er nýjung  og eru þær báðar tengdar við sjálfstýringu bátsins.
 

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Kristinn SH712


 

8.9.2006
Sóley SH 124 fær nýjan Simrad ES60 dýptarmælir
   

Mareind ehf, setti á dögunum upp nýjan dýptarmælir um borð í Sóley SH124 sem kemur í staðinn fyrir gamlan Simrad ES380 dýptarmælir sem hefur verið í skipinu síðan 1985 eða allt frá því skipið var smíðað og var hann í góðu lagi þegar hann var tekinn frá borði eftir rúm 21 ár !   

Nýji ES60 mælirinn er með 2kw/38Khz splitbeam sendir á 2kw/38Khz splitbeam botnstykki,  að sögn Rúnars Magnússonar skipstjóra er hann mjög ánægður með mælirinn og greinilegt sé að mikil framþróun hafi  átt sér stað síðustu 2 áratugina.


 

20.7.2006
Sverrir Þór Jónsson í Keflavík  fékk afhentan nýjan Sputnik bát frá Knörr / Þorgeir og Ellert  á Akranesi nú í júlí, báturinn sem hefur fengið nafnið Happadís GK16 og er gerður út frá Sandgerði, hann er yfirbyggður og er útbúinn til línuveiða með línubeitningarvél.

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Happadís GK16 


 

 

10.2.2006
Haraldur Á. Haraldsson útgerðarmaður á  Patreksfirði  fékk í dag afhentann nýjan Viking 1135 bát  frá Bátasmiðjunni Samtak ehf  í Hafnarfirði  og hefur hann fengið nafnið Selma Dröfn BA21,  hann er útbúinn til línuveiða og er með lengdu dekki þ.e. með svokölluðum "svölum " .            

Mareind ehf,  sá um að setja upp öll siglingatækin í bátinn og tengja.

Sjá meira um Selmu Dröfn BA21


 

23.12.2005
Hringur SH153 sem er í eigu Guðmundar Runólfssonar hf, í Grundarfirði kom til landsins á föstudag í síðustu viku og er í Hafnarfirði þar sem vinnslulína á millidekk er sett í hann ásamt nýjum tækjabúnaði í brú. Hringur hefur verið í breytingum í Póllandi í 2 mánuði, hann var keyptur frá Skotlandi og var smíðaður 1999 í Skotlandi.  Hringur SH153 mun leysa af hólmi eldra skip Hring SH535 sem hefur verið gerður út af Guðmundi Runólfssyni hf í nær 8 ár og hefur aflað 30.000 tonn á þeim tíma. Hringur SH153 mun væntanlega fara í sína fyrstu veiðiferð við Ísland milli jóla og nýárs. 
 

Mareind ehf,  sá um að breyta tækjapúltum og setja upp ný siglinga og fiskileitartæki um borði í nýjann Hring SH153.

Sjá meira um Hring SH153

 

 


4.11.2005

Torfi Sigurðsson útgerðarmaður í  Ólafsvík fékk í dag afhentann nýjan Viking 1135 bát  frá Bátasmiðjunni Samtak ehf  í Hafnarfirði  og hefur hann fengið nafnið Olli SH375,  hann er útbúinn til línuveiða. Nýji báturinn kemur til með að leysa af hólmi eldri bát frá Seiglu sem var minni.
 

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Olla SH375

 

 


15.9.2005
Jóhann Rúnar Kristinsson útgerðarmaður á Rifi fékk nú í mánuðinum afhentann nýjan yfirbyggðan Cleopatra 38 bát sem er útbúinn til línuveiða með línubeitningarvél
Báturinn sem hefur fengið nafnið Særif SH25 var til sýnis á Sjávarútvegssýningunni nú í september.
Að útgerðinni standa auk Jóhanns synir hans Arnar og Friðþjófur.

 

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Særif SH25

 

 


26.8.2005
Baldur Hauksson í Grindavík fékk afhentan nýjan Sputnik bát frá Knörr / Þorgeir og Ellert  á Akranesi nú í ágúst, báturinn sem hefur fengið nafnið Eyrarberg GK60 er yfirbyggður og er útbúinn til línuveiða með línubeitningarvél.

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Eyrarberg GK60 

 

 


15.8.2005
Vöggur Ingvason í  Ólafsvík fékk afhentan nýjan Seiglubát af gerðinni Seigur 1160 í ágúst, báturinn sem hefur fengið nafnið Kóni ll SH52 er yfirbyggður og er útbúinn til línuveiða með línubeitningarvél.

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Kóna ll SH52 

 

 


21.3.2005
Egill Halldórsson SH2 kemur úr viðamiklum breytingum hjá Ósey í Hafnarfirði þar sem byggt var yfir  dekk og ný  brú byggð á bátinn.

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Egil Halldórsson SH2 

 

 


21.10.2004
Nýr bátur frá Knörr á Akranesi af gerðinni "Sputnik" afhentur Hjörleifi Guðmundssyni í  Ólafsvík og hefur hann fengið nafnið Geisli SH155 og er  yfirbyggður línubátur.

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Geisla SH155 

 

 


21.09.2004
Kristján Jónsson á Hellisandi fékk nýverið afhentan nýjan Seiglubát , Seigur 1160 sem hefur hlotið nafnið Matthías SH21 og er útbúinn með línubeitningarvél og er yfirbyggður.  

Mareind ehf,  sá um að útvega öll tækin í bátinn og setja þau upp og tengja.

Sjá meira um Matthías SH21 


 

 

           Mareind ehf  |  Nesvegur 7  |  350 Grundarfjörður  |  Sími:  438 6611  |  Fax:  438 6612  |    mareind@mareind.is