Steinunn hefur fengið þrjá nýja Furuno dýptarmæla sem allir hafa sína sérstöðu.

Furuno DFF1-UHD er með 50Khz og 200Khz TRUE ECHO CHIRP senda og getur sýnt botngreiningu á myndrænan og einfaldan máta sem skráist inn í botngreiningargagnagrunn í Maxsea TZ siglingaforritinu, einnig sýnir hann fiskstærð á einfaldan máta.

Furuno DFF-3D er nýr fjölgeisla dýptarmælir, fisksjá og sónar sem er tengdur Maxsea TZ siglingaforritinu. Mælirinn hefur 3 sendigeisla á 165Khz og dregur niður á 300metra dýpi. Þrívíddarmyndin sýnir sjávarbotninn og fiskitorfur á mjög greinilegan grafískan hátt í þrívídd og lit. Þessi þrívíddarmynd safnast upp í gagnagrunn í Maxsea Time Zero Professional siglingaforritinu.

Furuno FCV-1900G er dýptarmælir fyrir meira dýpi og getur verið með CHIRP eða FFS sendingatækni, mælirinn hefur stærðargreiningar-möguleika og getur tekið upp myndir til skoðunar seinna.