15.8.2015
Kristinn SH812 fékk nú í ágúst, nýjan Furuno CI88 Straummælir. Með straummæli er hægt að sjá straumhraða og stefnu í sjó á mismunandi dýpi samtímis. Þannig er hægt að leggja línu á nákvæmari hátt, einnig hjálpa þessar upplýsingar til við að minnka línuslit.